Magnað!!

Finnst fleirum en bara mér þetta fyndið orðalag:

"Sá sem ók aftan á bílinn var m.a. með hass í blóðinu, skv. þvagprufu.". Með hass í blóðinu skv. þvagprufu.

Ef fíkniefnafræðslan sem ég hlaut í skóla hefur skilað sér þá er hass leirkennt efni sem kemur í litlum kubbum og kveikt er í til að komast í vímu. Hlýtur að vera afskaplega óþægilegt að vera með það í blóðinu og hvað þá heldur að það komi fram á þvagprufu að það sé í blóðinu.

Ég hefði haldið að það væri virka efnið THC sem kæmi fram við þessi próf - en hvað veit ég? :)


mbl.is Óku undir áhrifum fíkniefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Næstum rétt hjá þér. Þvagprufurnar sýna óvirka efnið THC sem er í líkamanum 2-5vikum eftir neyslu.

Blóðprufurnar sýna hinsvegar virka efnið THC en þær kostuðu 177þús stykkið síðast þegar ég vissi.

Stebbi (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 23:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband